The Hommzaz...

Velkomin á vefsvæði Hommzanna !

21.01.2008 01:50:53 / varði

Kryddaðu tilveruna :)

I'm off.... farinn að versla í London og sjá Kryddpíurnar á tónleikum :haha::haha::haha:

Sjáumst hress á föstudaginn :D

Varði


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 04:06:09 / varði

Jólahvað !!

Jaháá... ég held ég sé haldinn krónískri leti... :S ekki nóg með það að klukkan sé 3.40 á aðfaranótt aðfangadags og að ég sé ekki búinn að gera neitt ! þá er ég líka að fara að vinna klukkan 8 í fyrramálið... sumsé.. auglýsingin frá VR er ég! Að dúdda kartöflurnar í kvöld :s gleðilíf! Letin er samt svo mikil að ég nenni ekki að byrja.. ég ætla nú samt að hrósa sjálfum mér fyrir að vera búinn að setja í 2 þvottavélar... þó svo að það séu svona um það bil 8 eftir :S

En svo að ég segi nú eikkað skemmtilegra en hvað ég er að gera akkúrat núna þá er það frekar fyndið að vera vinna í verslun um jól... það bregst ekki að á Þorláksmessu þá koma strákarnir einir í mollin að kaupa gjafir. Og er það eiginlega alveg sama hvað það er... þeir kaupa það... og gellan sem stendur við hliðiná þeim er svona eiginlega eins og kærastan... eða svona um það bil... eða eikkað... þeim er nokk sama !! sem er ógeðslega fyndið! Ég er búinn að vera með valkvíða allann desember um hvað eigi að gefa bestu vinunum svo ekki sé nefnd fjölskyldan... allar gjafir útpældar og stærðfræðilega mældar til að vekja sem mesta lukku. Þessir gaurar koma inn í klukkutíma og versla ALLAR gjafir !! afhverju getur maður ekki verið svona afslappaður... og fengið sér svo bara bjór fyrir vel unnin störf ??? Líklega að þetta sé bara one of life great mysteries ? og nei... það er ekki hægt að láta starfsfólk Topshop pakka inn gjöfunum fyrir sig.!! Sem var ein vinsælasta spurningin í dag :D

Enn og aftur ef einhver skyldi hafa misst af því ... já ég er að fara á Spice girls tónleika í London 22 janúar... og ég hlakka eiginlega meira til þess en jólanna.... sem er pínku leim... hinsvegar þarf fólk ekki að hafa áhyggjur af því að  ég verði kynvís any time soon... 8)

En ég vil endilega nota þessa nýjustu tækni og undur veraldarvefsins og óska öllum (þeim fáu sem ennþá kíkja inn á þessa síðu) gleðilegra jóla (og ég meina það!!) :D Ég bið bara um eitt... og það er að þið étið öll á ykkur gat... þar sem ég hef planað að gera það... og það yrði nú frekar vandró ef ég yrði sá eini sem væri með útistandandi bumbu um jólin...

Sé ykkur svo bara hress og kát í ræktinni á nýju ári :D

Baráttukveðjur... Varði :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 14:33:34 / varði

AAAAHHHH !!!

Ó mæ god !!! ég er að fara út í fyrramálið (til London) ... ég er ekki byrjaður að pakka... hvað þá setja í þvottavél !! mamma mín og pabbi voru að hlaupa út um hurðina á leið sinni til London og það er enginn hérna til að strauja buxurnar mínar !! WHAT TO DO !! Guð hvað ég er feginn að ég á ömmu sem kann að strauja ! ekki dæma mig... en ég strauja aldrei !!! Hata fokking svartar buxur!! Og já... mig langar í kaffi... og ég vil fá svar á íslensku þannig að ég fer inn á já.is!!! Fokk ógeðslegar auglýsingar! Hættur að hringja í 118 bara út af þessu !! eða kannski ekki... nenni ekki að fletta í símaskrá :D

Og já... ég og Andrés erum að fara á Spice girls tónleika í janúar í London !!! JIBBÍ JIBBÍ !!! Guð hvað ég hlakka til !! :D :D :D

En já... ein sígó síðan ætla ég að gera eikkað... veit ekki hvað það er... kannski að ég skrifi miða hvað ég eigi eftir að gera... fái mér aðra sígó... síðan fari ég og fái mér kaffi.. byrja svo! ... já það hljómar vel !! :D heheh

Wish me luck !

Kv. Varði


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 01:25:59 / varði

11.9.'07.... spúkí dei !!

Jæja... ekki mikill tími þessa dagana til að skrifa blogg... en þar sem klukkan er nú að ganga 2 að nóttu til þá finn ég mig knúinn til að skrifa smá skýrslu.

Mikið búið að gerast síðan að síðasta bloggi var hent inn í flýti. Litli strákurinn orðinn stór og kominn í háskólann :D Bjóst nú við því að þekkja ekki neinn í þessari blessuðu viðskiptafræði en allt kom fyrir ekki... hellingur af fólki sem maður kannast við... enda ekki annað hægt þar sem það eru um 250 manns með mér í bekk... vinsælt nám :s

En mér til mikillar gleði og yndisauka þá er hún Ella sem var að vinna með mér í þessu námi ... og byrjaði skólaganga okkar með því að fara í nýnemaferð! Í BOÐI TUBORG !!!!  Mæli með því að allir fari í háskólann þar sem að námsgjöldin eru klárlega búin að borga sig upp núna í áfengismagni :D Frekar skondin ferð... tók þátt í hæfileikakeppni... og vann ekki !! þeim þótti það ekki nógu mikill hæfileika að gera boy lap dance á formanni nemendafélagsins :D hahah .... (eða kannski var hann ekkert í nemendafélaginu... veit ekki ???)

En það sem snýr nú að náminu er hingað til frekar skemmtilegt... allir kennararnir hressir og námsefnið nú ekki af verri endanum... þó svo að ég setji aðeins spurningamerki við 400 bls. Stærðfræðibókina mína... sem er full af merkjum og tölum sem ég skil nú ekki mikið í :S... en hvað um það... ég hlýt nú að geta krafsað mig í gegnum þetta eins og allt annað. ..

Ekki er nú mikið meira í fréttum nema það að ég fékk þær góðu fréttir í dag að ég kæmist með í vísindaferð til London í okt :D How cool is that !!!! eeehhmmm Pant missa mig í Topman !!!

En já.... ef þið viljið sjá nokkrar myndir úr nýnemaferðinni þá eru þær inná www.magus.hi.is

Guð blessi Tuborg !!

Munið nú að kvitta pínkupons.... það veitir mér svo mikla gleði í hjartanu mínu :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 23:27:05 / varði

Ný færsla á nýjum tímum :) hahah

OK! Útskriftin er búin og maður fer óðum að byrja í Háskóla !! Hver hefði trúað því að litla ljóskan færi í svoleiðis :D

 

Búið að vera ágætis sumar.... veðrið leikið við mann.... fór til Parísar sem var æði !! Andrés og Oddur voru á ferð sinni um Evrópu og ég og Jóhanna ákváðum að skella okkur bara til Parísar að hitta þá... heavy gaman.... vorum þar í 6 daga og skemmtun okkur konunglega... gat sýnt þeim bókstaflega alla borgina á þessum stutta tíma... þó það hefði nú verið eytt ágætis tíma í að vera þunnur og leiðinlegur ! ! :D

 

Annars er maður bara búinn að taka lífinu létt í sumar... er ekkert búinn að vera drepa mig á vinnu eins og flest allir aðrir.... og ég skal alveg viðurkenna það að ég er alveg hættur að nenna blogga... eins og núna... ég er algjörlega hættur að kunna þetta... hef ekkert merkilegt að segja... nema það að ég er að fara til Mallorca á frídegi verslunarmanna... og verð í 2 vikur... :D get varla beðið.... þó svo að maður missi af Gay pride þá er það bara allt í stakasta lagi :D

 

Reyni að mana mig upp í standa mig betur í þessu.... veit ekki alveg hvernig það mun takast... kemur í ljós :D

 

Kv. Varði


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 22:09:55 / varði

Færsla

Hellúúú

Nei ég er nú aldeilis ekki hættur að blogga en ég ætla að setja þessa síða á stopp þar til eftir útskrift þar sem helmingur allra kennara í skólanum les þessa blessaða síðu... og maður vill nú ekki segja neitt hérna sem gæti komið í veg fyrir að maður útskrifist.... kenni hommafordómum alfarið um !!!

Jæja Steinunn mín.... ekki meira slúður fyrir þig :D

Kv. Varði ofurmjói ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 01:28:20 / varði

AFMÆLI !!!

HEY !!! people !!

Þar sem ég er sá eini sem sér um þessa síðu þá verð ég bara að segja þetta sjálfur !!

ÉG Á AFMÆLI Í DAG !!!!!

 Kv. Varði sem verður drukkinn á Thorvó í kvöld !!! MOJITO !!!


» 11 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 01:50:45 / varði

Ný skoðanakönnun !!

Ok þetta er búin að vera frekar skrítin vika ! En seinasta endaði vel ... allavega hjá sumum :D

Mamma hélt uppá fimmtugsafmælið sitt á laugardaginn og var það í alla staði vel lukkað ! Vín flæðandi um allt og lét ég nú ekki mitt eftir liggja í þeim málefnunum ;) eins og venjulega hehe en ég held að hann Össi hafi verið aðeins betri en ég ... en hann elti ömmu mína allt kvöldið með rauðvínsflösku og fyllti á hjá henni :D roosalega fyndið hehe “amma mín ! má ekki bjóða þér meira vín ?? það er orðið solldið lítið í glasinu hjá þér :D” og þá heyrðist nú í ömmu minni “guð blessi þig drengur” eða eikkað álíka hehe hann skoraði mörg stig þetta kvöldið :D  

En þá er komið að þessari viku... byrjaði á mánudaginn að ég og Hekla ætluðum að vera roooosalega dugleg að læra fyrir sögu..... en þegar við vorum rúmlega byrjuð þá kom einhver púki í okkur og við ákváðum að skella í okkur einni hvítvín :D mjög sniðugt ! en það endaði með því að við kláruðum flöskuna og bjóra.... og skelltum okkur niðrá Thorvaldsen :D sniðugt að fara á fyllerý á MÁNUDEGI !! eða ?? en þá hélt ég nú að það væri komið gott af skemmtun í vikunni... en nei !! Ég og Solla fórum með Andrési og Jóhönnu á kózý að ræða eina danmerkurferð.... það byrjaði með einum bjór... endaði á kaffibarnum í dansi eftir 2 flöskur og staup !!! ég meina kommon !! Það er miðvikudagur!!! Ég og Andrés fórum síðan heim til hans að halda aðeins áfram... sem endaði með jóga kl. 3 um nóttina... ógeðslega funny !!! með greatest hits of Buddha á fóninum  !! :D hehe mjög gaman !! en vaknaði upp við það að Hekla hringdi í mig og sagði mér þær gleðifréttir að ég væri að fara í próf á föstudaginn í stærðfræði ásamt því að fara með fyrirlestur í sögu !! talandi um slæma þynnku !!! :D hehe 

En núna verður tekin smá læripása.... einbeita sér... (þangað til á lau) að náminu.... en þá er komið að öðru fyllerýi !! :D en síðan er það bara vogur á mán ! verst að það skuli vera búið að loka byrginu! Það hljómaði vel ;) hehe 

Anywhoo.... farinn að læra.... og síðan að reyna sofa eikkað...  

Kv. Varði AA!


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 01:32:37 / varði

What to do ??

Jæja gott fólk.... þá er helgin búin.... and what a weekend it was !! Byrjaði þessa stórskemmtilegu helgi á að vera vinna í Topshop til 11 á föstudagskvöldið !! mega skemmtilegt.... og átti að mæta kl. 9 aftur um morguninn... en þetta var einmitt fríhelgin mín :D frekar skemmtilegt.... en ég lét það nú ekki stoppa mig í því að skella mér aðeins út.... hringdi í Össa og við ákváðum að skella okkur aðeins út... kíkja á strákakvöld á cózý.... eins og það sé einhvað spennó.... neeeiii... held ekki... en ég hef án djók aldrei drukkið eins lítið áfengi og vaknað eins þunnur.. ALLTOF seint !! en sem betur fer var Hrund mætt til að opna fyrir liðinu þannig að ég gat aðeins jafnað mig....

Lenti svo í tveggja tíma fatakrísu þar sem mig langaði alveg svakalega mikið í ný föt.... en fann ekki neitt þannig að Friðrik Ómar lúkkið varð bara enn og aftur fyrir valinu.... semsagt síðermabolur og vesti !!! :D síðan eyddi ég og Hrund 3 tímum í að búa til djammdagatal í afmælisgjöf handa Össa en hann hélt upp á afmælið sitt á laugardagskvöld... mega gaman !! vorum heima hjá honum til að ganga 3 !!! en þá loksins náðum við í Taxa og gátum trítlað niðrá Q-bar.... sem btw er ekkert spes staður... alltof freaky tónlist !! en mig minnir að mér hafi verið nokkuð sama þar sem ég var það svakalega drukkinn !! :D  

Djókur helgarinn var klárlega = “are you chinese??” og “nigga please!!” ég og Solla aka Valla aka Storða :D  

Og já !! verð að segja ykkur hvað ég og Solla gáfum Össa í afmælisgjöf !! :D eins og ég sagði áðan þá gerði ég með MIKILLI hjálp frá Hrund djammdagatal þar sem við settum inn á það að alltaf á föstudögum verður hann að muna eftir ríkinu og á laugardögum verður hann að muna eftir djammi... síðan setti ég inn afmælisdaga og sonna... ógeðslega flott með myndum af okkur öllum og sonna... :D Síðan fóru ég og Solla niðrí rómantík.is og keyptum handa honum dildó og sleipiefni... algjört þarfaþing á hverju hommaheimili :D síðan vorum við búin að undirbúa stórt surprise seinna um kvöldið en þá ætlaði vinur hennar Sollu, Þórður, að koma. Við settum bleika slaufu utan um hann og gáfu Össa kærasta !!! eitt það fyndnasta sem ég hef séð er svipurinn á Össa þegar hann sá þetta.... ég hélt hann ætlaði að kúka á sig úr skömmustulegheitum !! :D hehe Ég tel mig og Solla eiga mikið hrós skilið fyrir bestu afmælisgjafir aldarinnar !! ??don’t you ?? :D  

Btw... þynnkan í dag var mjög skemmtileg!! Vaknaði við sms frá mömmu þar sem hún var að segja mér frá því að það væri sprungið dekk á bílnum mínum!! DAMN IT !! einmitt það sem mig langaði að gera skelþunnur!  

En núna ætla ég að fara sofa... kannski kominn tími á það enda eru hinir stórskemmtilegu stærðfræðitímar í fyrrmálið :D  

Munið að kvitta og kommenta!

Kv. Varði ofurdrukkni! :D


» 10 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 11:21:39 / varði

Nýtt blogg !!

Þið getið bara ekki ímyndað ykkur hvað það er skemmtilegt í stærðfræði !!! Og Hekla ! Þú ert lúði fyrir að mæta ekki ! Hún er nefnilega að skrópa og ég þarf að hlusta á þennan blessaða kennara með skræku röddina ! :D Elsk’ana!!  

Það er nú mest lítið í fréttum nema það að ég og Solla erum að fara flytja til Köben í júni.... og komum aftur heim í byrjun ágúst :D þetta verður án efa alveg mega gaman !! Erum að tjékka á vinnum.... og eru allir í fullri vinnu við að redda okkur vinnu... t.d þá hefur amma hennar Sollu einhver sambönd hjá Baugi og er búin að ræsa alla út við að redda vinnu í Topshop á strikinu! Ekki það að það yrði einhvað erfitt að redda þeirri vinnu sjálf þar sem við erum bæði búin að vera vinna hjá Topshop í næstum 2 ár ! :D en þetta reddast allt saman.... erum núna á fullu að leyta að íbúð sem sæmir svona merkilegu fólki eins og okkur.... :DPlanið er að hætta að vinna rétt fyrir verslunarmannahelgi og kíkja þá eikkað skemmtilegt út í heim yfir helgi eða kannski aðeins lengur... koma svo heim rétt fyrir gay pride og djamma af okkur rassgatið í 3 daga !!! (þannig að það er stíf megrun sem er byrjuð þar sem ég ætla mér að vera ber að ofan í göngunni og bara allsstaðar :D )  og strax á mánudeginum eftir Gay pride þá fer minns í eina viku með fjölskyldunni til Mallorca :D þannig að ég býst ekki við því að vera mikið heima í sumar.... en það er nú bara allt í lagi.... held ég :S verð bara að koma honum Össa mínum fyrir í pössun á meðan :D híhí

 Seinasta helgi var hreint ekki skemmtileg... Eurovision ball sem ég tæknilega séð mátti ekki fara á .... en fór nú bara samt.... (þeir vita það sem eiga að vita afhverju ég átti ekki að fara) mjög skemmtilegt á þessu balli... skondið að fara svona edrú ... geri það nú ekki oft !! eins og þið eigið að vita... en ég tók hana Sigrúnu Kr. um það bil edrú með mér en hún var ekki lengi að finna sér skemmtilegri dansfélaga þar sem ég hreyfði mig nú ekki mikið... allur bundinn og lemstraður :D um hálf 3 þá trítlaði ég bara út í bíl og keyrði mig heim.... mega nice að vakna daginn eftir bara ferskur og fínn... engin þynnka.. .enginn mórall... langt síðan maður hefur upplifað svoleiðis helgi :D En nóg um edrú djamm !!! næsta helgi verður tekin með pomp og prakt !! Madonnu tónleikar í imbanum og ætlum við nú að fjölmenna heima hjá Sigrúnu með osta og góð vín... og mikið af víni... góðu víni... sem er gott að drekka... og maður verður hress af :D can’t wait !!  

Jæja nú fer stærðfræði alveg að verða búin..... en vil nú nota tækifærið og óska Össa til hamingju með gærdaginn ... en hann varð svo MIKIÐ sem 25 ÁRA GAMALL !!! :D hehe god bless him :D

 

Kv. Varði hommzzz....

» 5 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 23:50:15 / varði

Nýjar myndir !! !

Jæja gott fólk... nú þegar maður er kominn í skóla þá hefur maður ekkert annað betra við tíma sinn að gera en að hanga á netinu og gera gagnlega hluti ! ! :D hehe núna eru semsagt komnar inn nýjar myndir inn á "hommzumyndirNAR" Endilega að skoða....

Annars er bara allt gott að frétta.... held að skólinn gangi mjög vel.... þó að eins og stendur sé hugurinn við einhvern annann ;) hehe en só what ! maður lifir bara tvisvar !

Munið að kommenta og endilega að segja hvað ykkur finnst um nýju myndirnar ;)

Tútúls ! Varði


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.01.2007 22:20:14 / varði

whatevöör !!

jæja... vegna fjölda áskorana þá hef ég ákveðið að skella inn einu stykki bloggi fyrir æsta aðdáendur :D
Það sem er helst í fréttum er það að minns sagði starfi sínu lausu (sagði semsagt upp... fyrir þá sem ekki skyldu) og sótti um í skóla... og mun vonandi klára stúdentinn í vor, ef ég fæ allar einingarnar inn sem ég þarf til. Þannig að ef allt fer sem að óskum þá verður alveg svakalegt pallapartý í vor hér á bæ :D DJAMM ! ! !
Svo er það smásaga vikunnar:
Ég var staddur eitt einmannalegt kvöld í desember á Domino's að bíða spenntur eftir pitsunni minni (og Ella, en samt aðallega mín pítsa hehe)
en þá undarlegt sms... í því stóð "til þín og Össa sást í köben, eruð í desember útgáfu Out'n'about. Viltu 1 eða 3 eintök ? kv. Dofri"
ég náttúrulega bara :o ó mæ god ! ! hvað er í gangi ??? hringdi strax í Össa og um leið og ég var að hringja mundu ég aðeins eftir því
þegar tveir menn komu upp að okkur á Pan barnum úti og spurðu hvort þeir mættu taka mynd af okkur... og við á 50 glasi sögðum auðvitað
JÁÁÁ !!! eða JAAA ! ! frekar spes dæmi sko. . en ekkert merkilegra en það að það var smá mynd af mér og Össa á einni síðunni en
engu að síður ... við vorum í dönsku hommablaði... ekki þið !! nenenenenene ! ! ! :D hehe
Þökkum Dofra fyrir að koma blöðunum heim til landsins :D
Annar var það ekkert meir.... nema að ég er greinilega sá eini sem fannst ballið um áramótin vera skemmtilegt... og mér fannst Skjöldur vera
góður sem DJ... aldrei þessu vant :S eða þú veist.... man allavega ekki eftir neinum techno mixum af skemmtilegum lögum sem eru í 7 mín að
byrja  !!! vonum bara að hann sé ekki mikill blogglesari, ef svo er... lov ya man :D hehe

Svo er það bara big time djamm á morgun.. Nýársgleði Íshafnar.... mikið áfengi.. Singstar... gamlar myndir.. kannski að Silvíu Nótt
bregði fyrir á tjaldinu :D hehe þeir fatta sem fatta ...

Munið að kommenta og kvitta...

Kv. Varði famous in Denmark ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.12.2006 23:16:33 / varði

Jóla jóla

GLEÐILEG JÓL EVERYBODY !!! BORÐIÐI NÚ ÓGISSLEGA MIKIÐ UM JÓLIN SVO AÐ ÉG LÍTI ÚT FYRIR AÐ VERA GRENNRI :D HEHEHE

KV. VARÐI JÓLASTRUMPUR :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 14:49:31 / varði

??

Hvar get ég sett jólahúfu á Gretti minn ???

Svar óskast :(

Kv. Varði sorrý-strumpur


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.12.2006 00:15:36 / varði

He..he..he

OK ! OK ! ég er latur bloggari :( en þá er líka bara meira gaman þegar ég loksins blogga... ekki það að ég eigi einn að sjá um þessa síðu ! hóst hóst ! en ég gafst upp á þeim kumpánunum a long time agó !

Nýjasta í fréttum er þetta helst:

-            Fluttur aftur heim! nenn’ekki að búa einn.... mega leiðinlegt... held ég hafi orðið pínku einhverfur á þessu öllu saman... ! en er allur að koma til aftur :D DJAMM! !!

-            Flyt aftur í jan .... um eina hæð niður... í bílskúrsíbúðina... þar sem hann yndislegi bróðir minn ætlar loksins að flytja að heimann :D mikill söknuður í húsinu :cry: blóm og krannsar afþakkaðir ...

-            Kona reyndi að lemja mig á Thorvaldsen seinustu helgi... hommi skakkaðist í leikinn eftir að ég varð reiður... takk.... :D

-            10 mín seinna stal þessi kellingartussa !! jakkanum mínum... held ég ... en ég fann hana ekki! damn it ! Sigrún hefði alveg getað tekið hana.. (þó samt ekki á lesbískann hátt sko ! :D ) En Andrés úberbarþjónn a.k.a reyndi-aðfylla-mig –og-tókst-það-vel-Andrés fann jakkann og ég þakkaði honum einum of fyrir :D híhíhíhíh... djók :D haha bygones!

-            ég varð í fyrsta skiptið á ævi minni svona ógeðslega þunnur! sú þynnka endist mér fram á miðvikudag en á fimmtudaginn var ég aftur kominn í gott skap... eins og mér einum er lagið... og kominn í djammfíling aftur... Sigrúnu til mikills léttirs! fjúkket! :D

Annars hef ég ekki mikið annað að segja... hlakka til að djamma... hlakka til að vinna í des... því þá fæ ég að hlusta ógisslega mikið á jólalög !! jei !!

OG !!! vitiði hvað !! ??? nei þið vitið það ekki... hvernig spyr ég ha..ha..ha ! ! Nýji verslunarstjórinn í Topshop heitir.... ekkert annað en .... ABBA!!!! Ég dey !! núna verður allskonar ABBA á svæðinu... ABBA teens, ABBA the musical, venjulegt ABBA og ABBA verlsunarstjóri OG Varði “ABBA fan” aðstoðarverslunarstjóri... skondið ha ?? :D

 

 



Gotta go! Kommentið you drusls!! :D heheh

Kv. Varði

 

 



P.s Levi’s!! Hættiði að herma með ABBA tónlistina! þetta gengur bara upp ef það einhver flaming að dansa og vera crazy inn í búð! ok! :D Gleðileg jól


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Dagsetning
16. mars 2010